Hafnaði á hlið utan vegar

Maðurinn slasaðist ekki alvarlega að sögn slökkviliðs.
Maðurinn slasaðist ekki alvarlega að sögn slökkviliðs. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði fyrr í kvöld og lenti á hlið.

„Hann hefur bara lagst á hliðina í beygju,“ segir Jónas Árnason, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.

Slysið varð um hálftíu í kvöld við Reykjavíkurveg. Vísir greindi fyrst frá.

„Hann hefur bara lagst á hliðina í beygju,“ segir varðstjóri …
„Hann hefur bara lagst á hliðina í beygju,“ segir varðstjóri slökkviliðsins. map.is

Jónas segir að ökumaðurinn hafi ekki slasast alvarlega og í raun hafi hann sjálfur stigið úr bifreiðinni. 

Til öryggis var ökumaðurinn þó fluttur á bráðamóttöku til frekari skoðunar. Varðstjórinn gat ekki sagt til um tjón á bifreiðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert