Ljósleiðari enn raskaður eftir jökulhlaup í Skálm

Vatn úr jökulhlaupinu lagði mikið álag á ljósleiðarastreng á svæðinu.
Vatn úr jökulhlaupinu lagði mikið álag á ljósleiðarastreng á svæðinu. mbl.is/Hákon

Unnið er að viðgerðum eftir að röskun varð á ljósleiðarastreng um helgina þegar að Mýrdalsjökull hljóp fram í ána Skálm.

Stærðarinnar jökulhlaup, upp á allt að þúsund rúmmetra á sekúndu, hófst úr Mýrdalsjökli á laugardag og flóð úr jöklinum skemmdi um 700 metra vegkafla á hringveginum.

Atli Stefán Yngvason, sérfræðingur hjá Mílu, útskýrir í samtali við mbl.is að vatn úr jökulhlaupinu hafi lagt mikið álag á ljósleiðarastreng á svæðinu, sem hafði tilheyrandi áhrif á sambönd Mílu í kringum Kirkjubæjarklaustur og nágrenni.

„Við það að slitna“

„Það er eins og hann væri við það að slitna,“ segir Atli en strengurinn slitnaði blessunarlega ekki. „[Álagið] veldur svokallaðri deyfingu sem dregur öll gæðin niður á ljósleiðaranum svæðinu.“

Hann segir að mestra áhrifa gæti á Kirkjubæjarklaustri en kveður áhrifin annars minniháttar.

Í gær lauk viðgerðum á einu svæði þar sem strengurinn varð fyrir hnjaski, að sögn Atla. Aftur á móti eigi enn eigi eftir að klára viðgerðir í Ásum, en það hefur reynst erfitt vegna vatnsmagns.

„Þegar því lýkur ætti kerfið að vera komið á góðan stað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert