Síldarævintýri með þrautum og bjór

Síldarævintýrið er haldið að þessu sinni í þrítugasta sinn þó …
Síldarævintýrið er haldið að þessu sinni í þrítugasta sinn þó hátíðin eigi rætur sínar að rekja aftur í tímann um 35 ár og segir Þórarinn hana hafa verið fyrirmynd annara bæjarhátíða á sínum tíma. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Ægisson

Verið er að leggja lokhönd á undirbúning hátíðarinnar Síldarævintýrið á Siglufirði sem verður haldin um verslunarmannahelgina. Bruggverksmiðjan Segull 67 mun efna til bjórleika, þar sem keppt verður í alls konar þrautum samhliða bjórdrykkju. 

Þórarinn Hannesson, einn aðstandenda ævintýrisins, segir hátíðina miða að fjölskyldum en að nóg verði um dansleiki og skemmtanir fram á nótt. 

Nær eingöngu heimafólk að skemmta

„Markmiðið er að kynna hvað Siglufjörður hefur upp á bjóða í menningu, mat og drykk og nær eingöngu heimafólk mun sjá um skemmtunina,“ segir Þórarinn. 

Hann segir Sildarævintýrið vera fjölskylduhátíð en að nóg verði um skemmtanir fram á nótt og að sjálfsögðu verður síldin í hávegum höfð. 

„Síldin er auðvitað alltaf nálægt, enda Síldarævintýri, þannig það verða söltunarsýningar, dansað á bryggjunni og síldarslagararnir munu hljóma um götur og torg.“

Fagna 30 ára afmæli

Bruggverksmiðjan Segull 67 hefur staðið að árlegum bjórleikum síðustu ár, þar sem keppt í alls konar þrautum samhliða bjórdrykkju.

Síldarævintýrið er haldið að þessu sinni í þrítugasta sinn þó hátíðin eigi rætur sínar að rekja aftur í tímann um 35 ár og segir Þórarinn hana hafa verið fyrirmynd annara bæjarhátíða á sínum tíma.

Hann segir dagskrána í ár vera með hefðbundnu sniði þó hún sé veglegri í ár en árin áður.

„Þetta verða fleiri og stærri viðburðir í ár í tilefni þess að verið er að halda hana í þrítugasta skiptið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert