Von á góðri berjasprettu í sumar

Sveinn segir gott vor oft gefa vísbendingu um hvort berjasprettan …
Sveinn segir gott vor oft gefa vísbendingu um hvort berjasprettan verði góð. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Mér sýnist nú á öllum sólarmerkjum að það eigi að vera betra ár núna en það var í fyrra. Það var nú alveg sérstaklega lélegt berjaár á vestanverðu landinu í fyrra. Svo það þarf nú kannski ekki mikið til að það verði betra í ár,“ segir Sveinn Rúnar Hauksson, heimilislæknir og berjaáhugamaður.

Hann segir gott vor oft gefa vísbendingu um hvort berjasprettan verði góð og kveðst mjög bjartsýnn á góða sprettu á Vesturlandi.

Krækiber eru vinsæl meðal margra Íslendinga.
Krækiber eru vinsæl meðal margra Íslendinga. Ljósmynd/Steinunn Ásmundsdóttir

Spurður um áhrifin af óveðrinu á Norðausturlandi í byrjun júní á berjasprettuna segir hann erfitt að segja til um það.

„Þetta var mjög erfitt fyrir gróðurinn, ekki bara túnin heldur líka lággróðurinn sem gæti komið illa út úr því. Hann getur samt jafnað sig. Nú eru búin að vera mikil hlýindi á norðan- og austanverðu landinu.“

Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, miðvikudag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert