Mætti með barnabarnið á Austurvöll

Lilja Dóra Harðardóttir er mætt á Austurvöll.
Lilja Dóra Harðardóttir er mætt á Austurvöll. mbl.is/Inga Þóra

Lilja Dóra Harðardóttir er mætt á Austurvöll ásamt barnabarni sínu Hólmfríði Lilju Hauksdóttur sem verður tveggja ára í nóvember.

Sú stutta er að fara að sjá fyrsta forsetann sinn og Lilja segir um að gera leyfa henni að fylgjast með þessum viðburði í dag þegar nýr forseti tekur við embætti.

„Kannski verður þetta forseti hennar næstu áratugina þess vegna. Hver veit?“ segir hún.

Reyna að svæfa barnabarnið

Spurð fyrr í dag af hverju þær séu mættar svo snemma svarar Lilja að hún hafi nú ætlað að reyna að svæfa barnabarnið þar sem það sé kominn svefntími hjá henni en að það sé ekki alveg að fara að lukkast.

„Hún er kannski svona spennt fyrir væntanlegri athöfn,“ segir Lilja.

Úr því að það hafi stytt upp hafi hún drifið sig og finnist gaman að vera einu sinni þátttakandi í svona „alvöru, þjóðlegum viðburði“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert