Hvalfjarðargöng hafa opnað á ný en vegfarendur eru hvattir til að halda góðu bili því búist er við mikilli umferð um göngin í dag. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.
Göngunum var lokað tímabundið rétt fyrir 13 í dag vegna minniháttar slyss og var slökkvilið kallað út.
Þetta staðfesti varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu en málið er á borði slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.
Fréttin hefur verið uppfærð.