Göngin opnuð á ný eftir slys

Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað vegna slyss.
Hvalfjarðargöngum hefur verið lokað vegna slyss. mbl.is/Eggert

Hvalfjarðargöng hafa opnað á ný en vegfarendur eru hvattir til að halda góðu bili því búist er við mikilli umferð um göngin í dag. Þetta kemur fram á síðu Vegagerðarinnar.

Göngunum var lokað tímabundið rétt fyrir 13 í dag vegna minniháttar slyss og var slökkvilið  kallað út.

Þetta staðfesti varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu en málið er á borði slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert