Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna slagsmála á milli hóps unglinga og fullorðinna manna sem voru við málningarvinnu á bílastæðum við Mjóddina í Breiðholti.
Lögreglu barst tilkynning um slagsmálin klukka 22.14 í gærkvöldi, en sérsveit ríkislögreglustjóra veitti lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu stuðning.
„Þarna voru menn við vinnu og ungir drengir að trufla þá,“ segir Gunnar í samtali við mbl.is. Ungu drengirnir hafi kallað á fleiri ungmenni og einhverjar stympingar hafi orðið í kjölfarið.
Lögregla ræddi við þá sem þarna voru. Það hugðist þó enginn kæra og þar við sat.
Sérsveitin var ekki kölluð til vegna neinnar sérstakrar ógnar, en enginn þeirra sem að slagsmálunum komu voru vopnaðir, að sögn Gunnars Hilmarssonar, aðalvarðstjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
„Sérsveitin hefur komið þeim til aðstoðar, en þeir voru ekki kallaðir út sérstaklega. Það er nú oft þannig að þeir koma og bakka okkur upp.“