Nafnabreytingin afar óheppileg

Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Dagmála.
Farið er um víðan völl í nýjasta þætti Dagmála. mbl.is/Hallur Már

Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra skilur vel af hverju nafnabreyting afbrotamanns kemur fólki spánskt fyrir sjónir.

Í nýjasta þætti Dagmála er hún spurð út í nafnabreytingu afbrotamannsins Mohamad Kourani, sem breytti nafninu sínu í Mohamad Th. Jóhannesson, og hvort hann sé að vanvirða þjóðina með því að taka upp eftirnafn þáverandi forseta hennar.

„Ég tel þetta afar óheppilegt, að viðkomandi hafi nýtt sér þessa frjálsu löggjöf sem við höfum hér á landi – fyrir borgara þessa lands – til þess að breyta nafni sínu.

Ég skil það mjög vel að fólki komi þetta spánskt fyrir sjónir og vitaskuld finnst manni eins og það sé verið að gera gys að þjóðinni þegar einhver tekur upp eftirnafn forseta okkar – farsæls forseta á Bessastöðum. Þannig að ég get gagnrýnt það.“

Bagalegt fyrirkomulag

Í viðtalinu segir Guðrún einnig að hún vilji koma á fót móttökumiðstöð fyrir hælisleitendur og hyggst hún leggja fram frumvarp um slíkt.

„Ég tel bagalegt hvernig fyrirkomulagið er akkúrat núna. Fólk er að fara mjög fljótt, eða bara strax, inn í íslenskt samfélag.

Við þurfum að geta boðið fólki upp á að dvelja í móttökumiðstöð þegar það kemur, þannig að tími gefist til að rýna hverja umsókn og sjá hvort að fólk eigi erindi hingað eða ekki,“ segir Guðrún.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert