Gul viðvörun í gildi fram á kvöld

Viðvörunin á Suðausturlandi og Miðhálendinu gengur úr gildi klukkan 17 …
Viðvörunin á Suðausturlandi og Miðhálendinu gengur úr gildi klukkan 17 en á Suðurlandi klukkan 18 í dag. Kort/mbl.is

„Alldjúp lægð hringsólar fyrir sunnan land, en henni fylgir austan- og norðaustankaldi eða -strekkingsvindur, jafnvel hvassviðri syðst, þ.e. frá Eyjafjöllum austur í Öræfi. Dregur síðan smám saman úr vindi eftir hádegi.“

Svo segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands en gul viðvörun er í gildi á Suðurlandi, Suðausturlandi og Miðhálendinu fram á kvöld. 

Segir að varasamar aðstæður geta skapast fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind, „auk þess sem vindurinn mun án efa valda útilegu- og útivistarfólki vandræðum“.

Í öðrum landshlutum verður þó hægari vindur og væta með köflum, en yfirleitt þurrt og milt á vestanlands og í innsveitum á Norðurlandi.

Hiti verður á bilinu 10 til 18 stig, hlýjast vestantil.

Leiðindaveður á mánudag

Á morgun má búast við austankalda eða –strekking og dálítilli rigningu á sunnanverðu landinu, en þurrt að kalla norðan heiða.

Þá nálgast önnur lægð nálgast sunnan úr hafi um kvöldið og hvessir þá talsvert úr norðaustri með samfelldri rigningu suðaustanlands.

„Að morgni frídags verslunarmanna er síðan spáð leiðindaveðri, hvassri norðaustanátt með rigningu um allt land. Þeim sem eiga eitthvað undir veðri er bent á að fylgjast vel með veðurspám og -viðvörunum.“

Veðurvefur mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert