Hnífstungumál á Akureyri í nótt

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Á þriðja tímanum í nótt kom upp hnífstungumál í miðbæ Akureyrar.

Þetta kemur fram í færslu lögreglunnar á Norðurlandi eystra á Facebook.

Einn var fluttur til aðhlynningar á Sjúkrahúsið á Akureyri og er hann ekki talin í lífshættu.

Þá eru einstaklingar í haldi lögreglu vegna rannsóknar málsins.

Í færslunni segir að frekari upplýsingar um atvikið er ekki hægt að veita að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert