Myndskeið: Hrunin tjöld á víð og dreif í Dalnum

Kuldalegt var um að líta í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum á tíunda tímanum í kvöld þegar þetta myndband var tekið. 

Sjá má fjölda tjalda sem liggja flöt í grasinu og önnur sem eru hálf hrunin niður.

Veðrið hefur leikið þjóðhátíðargesti grátt í kvöld og hafa margir flutt tjöld sín í íþróttahúsið Herjólfshöll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert