„Það gekk bara glimrandi vel í gærkvöldi og í nótt,“ segir Jónas Guðbjörn Jónsson, formaður Þjóðhátíðarnefndar, í samtali við mbl.is og bætir við að vel hafi ræst úr veðrinu þrátt fyrir óskemmtilega spá.
„Það var smá rigning svona til að byrja með í kvölddagskránni, og svo stytti bara upp og bara blíða,“ segir Jónas. Búið var að spá úrkomu í Eyjum síðasta kvöld Þjóðhátíðar en ekki var vitað hve þung rigningin yrði.
Jónas segir að almenn ánægja hafi verið meðal tónleikagesta og að brekkusöngurinn hafi gengið vonum framar, ekki síst vegna óvænts blíðviðris á meðan honum stóð.
„Í brekkusöngnum var bara þvílík rjómablíða, það var geggjað sko,“ segir hann en hann tekur fram að Magnús Kjartan hafi farið á kostum sem forsöngvari og verið „alveg frábær.“
Nefnir hann að afmælistónleikarnir í tilefni 150 ára afmælis Þjóðhátíðar hafi einnig gengið mjög vel. Þá hafi margt ástsælt tónlistarfólk stigið á svið og flutt gömul lög í bland við ný.
Jónas segir að lokum að gestir Þjóðhátíðar séu nú margir farnir að taka saman og fara heim og Herjólfur ferji nú fjölda gesta aftur til Landeyjahafnar.