Tveir festust í helli eftir grjóthrun

Landsbjörg fékk tilkynninguna um klukkan 22.30 í kvöld. Mynd úr …
Landsbjörg fékk tilkynninguna um klukkan 22.30 í kvöld. Mynd úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Búið er að kalla út björgunarsveitir í uppsveitum Árnessýslu vegna tveggja einstaklinga sem eru fastir í helli eftir grjóthrun.

Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Landsbjörg fékk tilkynninguna um klukkan 22.30 í kvöld og eru björgunaraðgerðir því enn á algjöru byrjunarstigi. 

Búið er að boða út allar björgunarsveitir á Suðurlandi sem og sérhæfða hópa af höfuðborgarsvæðinu á björgunarsvæðið og eru fyrstu hópar á leið á vettvang.

Jón Þór gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert