Ellen Geirsdóttir Håkansson
Skilin sem ollu leiðindaveðri í gær fjarlægjast landið smám saman. Búist er við rólegu veðri í dag en líkur eru þó á síðdegisskúrum víða.
Hæg austlæg eða breytileg átt og bjart á köflum. Hiti á bilinu 8 til 17 stig. Svalast verður í þokunni við norður- og austurströndina.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.
Reiknað er með hægri norðlægri eða breytilegri átt á morgun, skýjað verður með köflum norðan- og austanlands en yfirleitt þurrt, þó verður einhver rigning fyrir austan fram eftir degi. Hiti lækkar og kólnar í veðri.
Bjart verður á Suður- og Suðvesturlandi og áfram milt veður í kortunum, stöku síðdegisskúrir þó líklegar.
Svöl norðvestlæg átt og lítils háttar væta víða um land á fimmtudag.