Farsæll endir á lögregluaðgerðum í Vogahverfi

Sérsveitin varð kölluð út til aðstoðar.
Sérsveitin varð kölluð út til aðstoðar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Aðgerðum lögreglunnar í Vogahverfi í Reykjavík er lokið en í tilkynningu kemur fram að enginn hafi verið handtekin í aðgerðunum og endirinn verið farsæll.

Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, upplýsingafulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við mbl.is að um hafi verið að ræða mann í ójafnvægi og honum hafi verið komið undir læknishendur. Hann vildi ekki tjá sig um málið að öðru leyti. 

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að sérsveitin hafi verið kölluð út til að aðstoða lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í aðgerðum við Karfavog í Vogahverfi.

Helena Rós Sturludóttir, upplýsingafulltrúi ríkislögreglustjóra, staðfesti þetta.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert