Búist er við hæglætisveðri á landinu um helgina, skýjað verður þó með köflum og einhver væta af og til. Þá er fremur þungbúið og svalt á norðanverðu landinu í dag en léttir til og hlýnar á morgun.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings.
Djúp lægð nálgast svo austanvert landið á mánudag, því fylgir strekkings norðanátt og rigning austast en hægari vindur og lítil úrkoma annars staðar. Svalt verður fyrir norðan og austan en lægðin ætti að fjarlægjast landið á þriðjudag og ætti veður að skána við það.