Fánar skornir niður á Selfossi og í Hveragerði

Nokkur dæmi erum um að hinseginfánar hafi verið skornir niður …
Nokkur dæmi erum um að hinseginfánar hafi verið skornir niður á Suðurlandi síðustu daga. mbl.is/Eyþór

Á síðustu þremur dögum hafa átt sér stað að minnsta kosti fjögur atvik á Suðurlandi sem flokkast gætu sem hatursglæpir gegn hinsegin fólki.

Í nótt voru skornir niður tveir regnbogafánar í Hveragerði en annar slíkur fáni var skorinn niður á Selfossi nóttina áður. Það var degi eftir að ýmis níðyrði og tákn voru máluð á regnboga á götu í Hveragerði.

Spellvirki framin í skjóli nætur

Á fimmtudaginn fjallaði mbl.is um spellvirki á regnbogafána sem málaður var á götu miðsvæðis í Hveragerði til að halda upp á hinsegin daga sem nú standa yfir.

Hvergerðingar voru ekki lengi að bregðast við skemmdarverkunum en málað var yfir þau og fáninn lengdur samdægurs.

Þá sýndu margir bæjarbúar samstöðu í verki með því að stilla upp fánum hinsegin samfélagsins við hús sín og fyrirtæki.

Í lokuðum Facebook-hópi Hvergerðinga var greint frá því í morgun að tveir slíkir fánar sem staðsettir voru við hjúkrunarheimilið Ás og Hveragerðiskirkju hefðu verið skornir niður í skjóli nætur.

Fáni skorinn niður á Selfossi

Þegar mbl.is ræddi við Garðar Má Garðarsson, aðalvarðstjóra lögreglunnar á Suðurlandi, fyrr í dag höfðu ekki enn borist tilkynningar um skemmdarverkin á fánunum í nótt. Hann greindi hinsvegar frá því að lögreglunni hafði borist tilkynning í gærmorgun um svipað atvik á Selfossi.

Þar hafði fáni verið skorinn niður fyrir utan fyrirtækið Rarik á Larsensstræti.

„Það er til rannsóknar hjá okkur en það er ekki búið að hafa upp á gerendum þar,“ segir Garðar og bætir við:

„Menn hafa mikið verið að spyrja út í hvort að þetta sé rannsakað sem hatursglæpur og við förum ekkert ofan að það er að sjálfsögðu það sem við höfum með annars á bakvið eyrað og er rannsakað með tilliti til þess.“

Þá hefur lögreglan spellvirkin á regnbogafánanum í miðbæ Hveragerðis einnig til rannsóknar en ekki hefur tekist að hafa upp á sökudólgunum í því máli.

Kynna fræðsluátak til að bregðast við

Í viðtali við mbl.is á fimmtudaginn talaði Pétur Markan bæjastjóri Hveragerðis um að bæjarfélagið myndi mæta hatrinu sem birtist í níðyrðaskrifunum með enn meiri birtu og kær­leika.

Þegar mbl.is leitaði eftir viðbrögðum frá honum í dag vegna fánanna sem voru skornir niður í skjóli nætur tók hann í svipaðan streng og lýsti yfir vonbrigðum með atvikin.

„Hveragerði er opið samfélag sem setur mannréttindi á oddinn og upphefur fjölbreytileika. Þannig þetta stingur í stúfa við það sem við gefum okkur út fyrir og erum,“ segir Pétur.

Þá tekur hann fram að bæjaryfirvöld séu þegar byrjuð að bregðast við en á mánudaginn verða kynntir fyrirlestar og fræðsluátak til að vinna gegn fordómum og hatri líkt og birtist í spellvirkjunum síðustu daga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert