Rafleiðni lækkar í Skálm

Rafleiðni hefur lækkað í Skálm.
Rafleiðni hefur lækkað í Skálm. mbl.is/Jónas Erlendsson

Undanfarnar klukkustundir hefur rafleiðni og vatnshæð farið lækkandi í Skálm við þjóðveg 1. Rafleiðni mælist þó hærra en eðlilegt er miðað við árstímann.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veðurstofu Íslands.

Greint var frá því í morgun að rafleiðni hafði hækkað í Skálm og Múlakvísl og varaði veðurstofan við gasmengun.

Í tilkynningunni segir að áfram mælist hækkuð gildi brennisteinsvetnis nærri upptökum Múlakvíslar.

Engar markverðar breytingar hafi orðið í óróa á jarðskjálftamælum í kringum Mýrdalsjökul. Veðurstofan beinir því til ferðafólks á svæðinu að sýna aðgát við upptök ánna og nærri árfarvegunum þar sem gasmengun gæti verið á svæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert