Virkjunarleyfi fyrir vindorkuver í Búrfellslundi í höfn

Svona mun Búrfellslundur líta út, gangi áformin eftir.
Svona mun Búrfellslundur líta út, gangi áformin eftir. Tölvumynd/Landsvirkjun

Orkustofnun afgreiddi í dag virkjunarleyfi fyrir vindorkuverið Búrfellslund við Vaðöldu. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til sveitarstjórnar Rangárþings ytra.

Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun.

Þá segir að búið sé að ganga frá tengisamningi við Landsnet og að verið sé að leggja lokahönd á samning um lands- og vindorkuréttindi við ríkið. Hvort tveggja eru mikilvægir áfangar í undirbúningsferli virkjunarkostsins.

Rannsóknir hafa gengið vel

Búrfellslundur var settur í nýtingarflokk rammaáætlunar árið 2022 og verður fyrsta vindorkuver landsins. Gert er ráð fyrir að 28-30 vindmyllur rísi sunnan Sultartangastíflu á 17 ferkílómetra svæði. Uppsett afl verður um 120 MW, að því er segir í tilkynningunni.

Landsvirkjun auglýsti útboð snemma þessa árs á vindmyllum fyrir Búrfellslund, með fyrirvara um leyfis- og skipulagsmál. Sú leið var farin til að styrkja líkurnar á að vindmyllurnar verði farnar að skila orku inn á raforkukerfið fyrir árslok 2026, eins og áætlanir gera ráð fyrir.

Jarðtæknirannsóknir sem hófust í vor hafa gengið vel og er gert ráð fyrir að þeim ljúki í haust.

Ef öll tilskilin leyfi fást tekur stjórn Landsvirkjunar að lokum endanlega ákvörðun um hvort ráðist verði í verkefnið, segir í tilkynningunni að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert