Ferðamennirnir frá Bandaríkjunum og Spáni

Málið er í rannsókn.
Málið er í rannsókn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Allir fjórir farþegar bílanna tveggja sem skullu saman í gær við Gígjukvísl voru erlendir.

Um er að ræða ferðamenn frá Bandaríkjunum og Spáni.

Aldursbil ferðamannanna er breitt, allt frá þrítugsaldri yfir á fimmtugsaldur og var um tvo fólksbíla að ræða.

Tæknideildin kölluð til 

Þá var tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu kölluð á vettvang þar sem slysið var metið sem alvarlegt. Rannsókn er enn í fullum gangi og eru tildrög ekki ljós.

Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi, í samtali við mbl.is.

Þá segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi að skýrslutöku sé ekki lokið.

Einn með verri áverka en hinir þrír

Útkall vegna slyssins, sem skeði ná­lægt Gígju­kvísl á Skeiðar­árs­andi, barst lögreglu klukkan 14.21 í gær. Hringveginum var lokað í kjölfarið og þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang.

Allir fjórir voru fluttir á Landsspítalann með þyrlunni en einn var sagður með verri áverka en hinir þrír, ekki hafi þó verið um lífshættulega áverka að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert