Sex vilja forstjórastólinn

Forstjóri verður skipaður innan skamms.
Forstjóri verður skipaður innan skamms. Ljósmynd/Erling Ólafsson

Sex sóttu um embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar, en umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti embættið laust til umsóknar í byrjun júlí sl. Þessi sóttu um:

Eydís Líndal Finnbogadóttir, settur forstjóri Náttúrufræðistofnunar, Guðmundur Þórðarson, samningamaður og sérfræðingur, Jón Einar Jónsson, forstöðumaður Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Snæfellsnesi, Kristófer S. Arnar P. Júlíusson líftæknir, María Ester Guðjónsdóttir, ferðamála- og viðskiptafræðingur, og Rakel Rún Karlsdóttir jarðfræðingur.

Hæfisnefnd mun meta hæfni og hæfi umsækjenda og skila greinargerð til ráðherra sem skipar í stöðuna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert