„Ég stend upp og finnst ég sjá ofsjónir“

Margrét Víkingsdóttir dvelur nú í húsi nágranna sinna.
Margrét Víkingsdóttir dvelur nú í húsi nágranna sinna. Samsett mynd

Margrét Víkingsdóttir, íbúi í húsi að Amtmannsstíg 6, segist þakklát hundinum sínum Úlfgrími Lokasyni og starfsfólki Menntaskólans í Reykjavík fyrir að aðstoða hana við að komast úr íbúð sinni þegar eldur kom upp í húsinu.

Þetta segir Margrét í samtali við mbl.is.

Eldurinn kom upp í húsinu í gærmorgun. Einn lést í eldsvoðanum, tónlistarmaðurinn Halldór Bragason.

Bankað á dyrnar

„Það er hundurinn sem stuggar við mér, hann tosar alltaf í mig á morgnana, um tíuleytið og vill fara á svalirnar,“ segir Margrét. Hins vegar hafi Úlfgrímur um áttaleytið í gærmorgun verið ákveðinn í að komast út og tosað í Margréti á meðan hún svaf.

„Ég stend upp og finnst ég sjá ofsjónir eins og reyk og nudda á mér augun og fer fram í stofu. Ég sé þá meiri reyk og fer niður og þá heyri ég bankað á dyrnar,“ segir Margrét.

Hundurinn Úlfgrímur Lokason er stór og mikill hundur af tegundinni …
Hundurinn Úlfgrímur Lokason er stór og mikill hundur af tegundinni Schäfer og er 40 kg. Ljósmynd/Aðsend

Sáu reyk á leið til vinnu

Hún hafi opnað útidyrnar og þar verið fólk sem sagði henni að koma út úr húsinu samstundis vegna þess að það væri kviknaði í húsinu.

„Þetta var menntaskólafólkið sem hafði verið að fara til vinnu um morguninn og séð reyk koma úr glugganum hjá nágrannanum og hringdu á 112,“ segir Margrét en Menntaskólinn í Reykjavík er til húsa rétt hjá henni.

Margrét segist hafa reynt að vekja nágranna sinn sem bjó í sama húsi. Hún bankaði fast og ítrekað á hurðina hjá honum án árangurs.

Hundurinn náði henni út á réttum tíma

„Ég myndi að segja að hundurinn hafi náð mér út á réttum tíma af því ég fann alveg fyrir reyknum í hálsinum. Hann var ekki orðinn svartur og dökkur heldur dökkgrár en þéttur,“ segir Margrét.

Iðnaðarmenn, húsvörður og kennarar við Menntaskólann í Reykjavík komu svo með hrúgu af fötum, teppum og úlpu fyrir Margréti.

Í kjallara hússins að Amtmannsstíg 6 leigir maður herbergi sem Margrét náði í. Fengu þau tvö skjól í húsakynnum Menntaskólans í Reykjavík þar sem þeim var boðið kaffi og bakkelsi.

„Þetta var afskaplega fallega gert af nágrannanum MR,“ segir Margrét.

Aðspurð segir Margrét það algjöra tilviljun að einhver hafi verið á ferðinni svo snemma hjá húsinu.

„Að einhver hafi rekið augun í gluggann því það voru allir gluggar lokaðir nema einn gluggi hjá nágrannanum sem snýr í hina áttina,“ segir hún.

Eldur kom upp í húsnæði að Amtmannsstíg 6 í gærmorgun.
Eldur kom upp í húsnæði að Amtmannsstíg 6 í gærmorgun. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Dvelur í húsi nágranna

Margrét segist almennt róleg að eðlisfari og starfar sem leiðsögumaður.

„Þegar ég kem að slysum þá sé ég bara hvað þarf að gera. Ég sé alveg röðunina á því hvað þarf að gera og til dæmis á leiðinni úr íbúðinni, þá lokaði ég öllu hjá mér svo það færi ekki súrefni á milli herbergja.“

Aðspurð segist Margrét vera hraust þrátt fyrir brunann.

„Ég er núna í næsta húsi að passa hund fyrir nágranna sem fóru til útlanda í fyrradag og þau eiga lítinn hund hérna sem er mikill vinur hundsins míns,“ segir Margrét. Nágrannarnir buðu henni að gista í íbúðinni sinni eftir að eldurinn kom upp.

Íbúðin hennar Margrétar virtist vera í góðu standi þrátt fyrir …
Íbúðin hennar Margrétar virtist vera í góðu standi þrátt fyrir brunann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spurð hvernig ástandið er á íbúðinni hennar segir Margrét að hún hafi virst í góðu standi þrátt fyrir eldsvoðann. Hins vegar hafi verið svakalega mikil brunalykt í íbúðinni.

„Það eina sem ég kvíði fyrir eru einhver leiðindi í kringum tryggingamál,“ segir Margrét en hún segist sjálf enn vera að átta sig á hver næstu skref eru eftir brunann.

„Ég hef ekki hugmynd hvern ég á að hafa samband við núna,“ segir Margrét að lokum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert