Axel Ingi Árnason hefur verið ráðinn forstöðumaður Salarins, en alls sóttu 30 um stöðuna. Axel Ingi er með BA og M.Mus í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands og meistarapróf í menningarstjórnum frá Háskólanum á Bifröst.
Þetta kom fram í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Hann hefur starfað sem tónskáld, lagahöfundur, kórstjóri og píanóleikari. Má þar nefna að hann samdi og flutti tónlistina í leikritinu Góðan daginn Faggi eftir Bjarna Snæbjörnsson og Grétu Kristínu Ómarsdóttur og hlaut fyrir verkið tilnefningar til Grímunnar og Íslensku tónlistarverðlaunanna.
Axel Ingi hefur einnig unnið við texta- og handritaskrif fyrir leiksýningar og sjónvarpsþætti, sett á fót eigin leiksýningar og tónlistarviðburði, verkefnastýrt viðburðum og unnið sem kórstjóri og píanókennari. Hann hefur frá hausti 2022 starfað sem verkefnastjóri viðburða og rekstrar í Salnum en frá því mars 2024 hefur Axel Ingi verið starfandi forstöðumaður Salarins.