Björgunarsveitir fundu göngumennina, sem villtust í þoku á Kerlingarfjallasvæðinu í gær, upp úr klukkan hálf eitt í nótt.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.
Þar segir að annar göngumannanna hafi verið nokkuð kaldur en annars amaði ekkert að þeim tveim. Voru þeir í kjölfar björgunarinnar fluttir á hótelið í Ásgarði.