Hafði heimild til að áminna Helga Magnús

Ráðuneytið sagði árið 2022 að ríkissaksóknari hefði heimild til að …
Ráðuneytið sagði árið 2022 að ríkissaksóknari hefði heimild til að áminna vararíkissaksóknara. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Dómsmálaráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu í ágúst 2022 að vararíkissaksóknari væri undirmaður ríkissaksóknara og að sá síðarnefndi hefði fulla heimild til að veita undirmanni sínum formlega áminningu.

Þetta staðfestir Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fv. dómsmálaráðherra, í samtali við mbl.is. Áminning getur verið undanfari þess að viðkomandi sé látinn fara.

Deilt hefur verið um hvort Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari hafi haft heimild til að veita Helga Magnúsi Gunnarssyni vararíkissaksóknara skriflega áminningu árið 2022.

Helgi Magnús segir Sigríði hafa farið út fyrir valdsvið sitt, það sé ekki hennar að veita honum áminningu heldur þess sem skipar í embættið, þ.e. dómsmálaráðherra.

Sá enga ástæðu til að hrófla við áminningunni

Jón Gunnarsson segir nú að ráðuneytið hafi á þeim tíma komist að skýrri niðurstöðu, þ.e. ríkissaksóknari er yfirmaður vararíkissaksóknara. Sigríður hafi því verið í fullum rétti til að veita Helga Magnúsi áminningu. Er þetta m.a. ástæða þess að dómsmálaráðuneytið sá enga ástæðu til að hrófla við áminningunni, sem nú hefur staðið óhögguð í tvö ár.

„Það er ríkissaksóknari sem er næsti yfirmaður vararíkissaksóknara. Og það er ríkissaksóknara að ákveða til hvaða viðbragða embættið grípur gagnvart honum,“ segir Jón og heldur áfram: 

„Það er hins vegar dómsmálaráðherra sem ber stjórnskipulega ábyrgð á skipun vararíkissaksóknara og að endingu yrði embættismanni í þessari stöðu ekki vikið úr embætti nema með fulltingi ráðherra.“

Ósæmileg hegðun Helga Magnúsar

Áminn­ing­in var veitt á þeim grund­velli að hátt­semi vara­rík­is­sak­sókn­ara utan starfs hans sem vara­rík­is­sak­sókn­ari hefði verið ósæmi­leg og ósam­rýman­leg starfi hans.

Hátt­sem­in hefði varpað rýrð á störf hans sem vara­rík­is­sak­sókn­ari, á embætti rík­is­sak­sókn­ara og ákæru­valdið almennt, sbr. 14. og 21. gr. laga nr. 70/​1996, auk þess sem tján­ing hans hefði grafið und­an virðingu og trausti til embætt­is rík­is­sak­sókn­ara og ákæru­valds­ins al­mennt.

Ber að vera öðrum ákærendum fyrirmynd

„Hér ber að und­ir­strika að vara­rík­is­sak­sókn­ari er staðgeng­ill rík­is­sak­sókn­ara sem er æðsti hand­hafi ákæru­valds hér á landi. Vara­rík­is­sak­sókn­ara ber því að vera öðrum ákær­end­um fyrirmynd í allri sinni fram­göngu,“ sagði í skrif­legu svari rík­is­sak­sókn­ara við fyr­ir­spurn mbl.is og Morg­un­blaðsins 2022 þegar Helga Magnúsi var fyrst veitt áminning.

„Ekki ber síður að árétta að áminn­ing þessi varðar ein­ung­is hátt­semi vara­rík­is­sak­sókn­ara utan starfs en ekki störf hans sem vara­rík­is­sak­sókn­ari sem eng­ar at­huga­semd­ir hafa verið gerðar við.“

Jón Gunnarsson, fv. dómsmálaráðherra.
Jón Gunnarsson, fv. dómsmálaráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert