Þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið upp á marga fiska í sumar og verðbólgan ekki gefið eftir láta ferðamenn það ekki stöðva sig í að heimsækja Ísland.
Yfirvofandi eldsumbrot á Reykjanesskaga fæla ferðamennina heldur ekki frá. Allt að 1.600 manns á dag virða hraunið við Sundhnúkagígaröðina fyrir sér.
Nýr teljari var settur upp í Grenjadal nýverið. Brottfarir ferðamanna frá Keflavíkurflugvelli í nýliðnum júlímánuði voru 277 þúsund talsins og hefur ekki verið svipaður brottfarafjöldi í júlímánuði síðan árið 2018.