Þrír fá rúmar 100 milljónir

Það er ýmislegt hægt að gera við 101 milljón.
Það er ýmislegt hægt að gera við 101 milljón.

Enginn hlaut fyrsta vinning í útdrætti kvöldsins í EuroJackpot, en þrír hlutu annan vinning. Hver þeirra fær rúmlega 101 milljón króna í sinn hlut. Miðarnir voru keyptir í Tékklandi, Svíþjóð og Póllandi. 

Þá hlutu sjö þriðja vinning. Hver þeirra fær rúmar 24,5 milljónir. Miðarnar voru keyptir í Þýskalandi, Noregi, Svíþjóð og Póllandi.

Einn með fyrsta vinning í Jóker

Heppinn miðahafi hlaut fyrsta vinning í Jóker kvöldsins og fær hann tvær milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var í áskrift.

Þá voru þrír með annan vinning. Hver þeirra fær 100 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir á N1 á Akranesi, á heimasíðu Lottós og einn var í áskrift. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert