Þrír fá tvær milljónir á mann

Fimmfaldur pottur næsta laugardag þar sem enginn náði að næla …
Fimmfaldur pottur næsta laugardag þar sem enginn náði að næla sér í hann í þetta skipti. Ljósmynd/Colourbox

Þó enginn hafi náð að næla sér í fyrsta vinning í lottóút­drætti kvölds­ins var Jókerinn gjafmildur. Næsta laugardag verður því fimmfaldur pottur.

Þrír miðaeigendur voru með 1. vinning í Jókernum og fá þeir allir tvær milljónir króna í sinn hlut.

Tveir keyptu miðana sína í Lottó appinu en einn er með miðann sinn í áskrift.

Tveir fengu bónusvinninginn

Tveir heppnir fengu bónusvinninginn og fá þeir rúmar 416 þúsund krónur í sinn vasa. Sex miðaeigendur voru með 2. vinning og fá þeir allir 100 þúsund krónur í sinn hlut.

Einn miðahafi er með miðann sinn í áskrift en aðrir miðar voru keyptir á N1 Ísafirði, N1 Borgarnesi, Olís Gullinbrú, Versluninni Bakkinn á Eyrarbakka og Siglósporti á Siglufirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert