Svöl norðlæg átt næstu daga

Norðlæg átt verður næstu daga.
Norðlæg átt verður næstu daga. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fremur svöl norðlæg átt verður á landinu í dag og næstu daga.

Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. 

Allt að 14 stiga hiti

Rigning eða súld og slydda verður til fjalla á norðanverðu landinu í dag. Sunnan heiða verður yfirleitt bjart en búast má við stöku síðdegisskúrum suðaustanlands.

Hiti verður frá 5 stigum á Norðurlandi að 14 stigum við suðurströndina.

Veðurvefur mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert