Maður slasaðist alvarlega á höfði í vinnuslysi hjá fyrirtækinu Furu á iðnarsvæðinu á Völlunum í Hafnarfirði í síðustu viku.
Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.
Hann segir að maðurinn hafi hlotið þungt höfuðhögg en hurð á gámi sem maðurinn var að gera við skall á höfði hans. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en talið er að hann hafi höfuðkúpubrotnað.
Málið er til rannsóknar að sögn Sævars en lögreglan hefur ekki nánari upplýsingar um líðan mannsins.