Alvarlegt vinnuslys í Hafnarfirði

Maður slasaðist alvarlega á höfði í vinnuslysi í Hafnarfirði í …
Maður slasaðist alvarlega á höfði í vinnuslysi í Hafnarfirði í síðustu viku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Maður slasaðist alvarlega á höfði í vinnuslysi hjá fyrirtækinu Furu á iðnarsvæðinu í Hellnahverfi Hafnarfirði í síðustu viku.

Sævar Guðmundsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni í Hafnarfirði, staðfestir þetta í samtali við mbl.is.

Hann segir að maðurinn hafi hlotið þungt höfuðhögg en hurð á gámi sem maðurinn var að gera við skall á höfði hans. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús en talið er að hann hafi höfuðkúpubrotnað.

Málið er til rannsóknar að sögn Sævars en lögreglan hefur ekki nánari upplýsingar um líðan mannsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert