Beint: Málstofa um íslenskt námsefni

Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Málstofan „Íslenskt námsefni – hvað er til?“ er haldin í dag í Laugalækjarskóla. Á málstofunni ræða hinir ýmsu sérfræðingar og aðrir gestir námsefnisgerð á leik-, grunn- og menntaskólastigi.

„Þátttakendur málstofunnar eru sérfræðingar sem allir brenna fyrir að skapa hágæða námsefni sem getur tryggt börnum jöfn tækifæri, ýtt undir aukin gæði kennslu og þannig aukið hæfni íslensks samfélags til framtíðar. Málstofan gefur tækifæri til að ræða mikilvægi fjölbreytts námsefnis sem ætlað er að styðja við inngildandi skólastarf auk þess að vekja athygli á skorti sem er á námsefni hér á landi,“ segir í tilkynningu.

Málstofan hefst klukkan 14 og stendur til kl. 16 en hana má horfa á í beinu streymi hér að neðan.

Á sama tíma verður til sýnis námsefni fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla.

Dagskrá málstofunnar er eftirfarandi:

  • Ávarp - Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra 
  • Námsgögn eru lykillinn - Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ
  • Bókaútgefendur - hornsteinar námsgagnaútgáfu - Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri IÐNÚ útgáfu og formaður Félags íslenskra bókaútgefenda
  • Kennarinn í kennslustofunni - Guðbjörg Íris, kennari í Rimaskóla
  • Heimasaumaðar lausnir framhaldsskólanna - Súsanna Margrét Gestsdóttir, námsbrautarformaður menntunar framhaldsskólakennara við Háskóla Íslands
  • Mikilvægi samfélagslegs frumkvæðis á landsbyggðinni -  Huld Hafliðadóttir forstöðukona og stofnandi STEM Húsavík og STEM Ísland
  • Nýsköpun í skólastarfi -  Þorbjörg St. Þorsteinsdóttir, deildarstjóri Mixtúru, sköpunar- og upplýsingatæknivers skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur
  • Gervigreind kennd á íslensku og samræmt námsmat - Héðinn Steingrímsson, stofnandi Skákgreind / Affekta 
  • Námsefni til framtíðar - Þórdís Jóna Sigurðardóttir, forstjóri Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu
  • Framtíð námsgagnagerðar á Íslandi - Íris E. Gísladóttir, stofnandi Evolytes og formaður Samtaka menntatæknifyrirtækja
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert