Staðfesta að nóróveira greindist

Rjúpnavellir eru í Rangárþingi ytra.
Rjúpnavellir eru í Rangárþingi ytra. mbl.is/Sigurður Bogi

Sýkla- og veirufræðideild Landspítala hefur staðfest að nóróveira greindist hjá a.m.k. sex einstaklingum eftir hópsýkingu sem kom upp meðal náttgesta á Rangárvöllum í lok júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu á heimasíðu Matvælastofnunar (MAST).

Sýkingar á borð við nóróveiru eru vel þekktar þar sem hópar fólks koma saman og smitleiðir eru nokkrar; aðallega með snertingu, fæði eða neysluvatni.

Sýkingin víðar á Rangárvöllum

Ljóst er að veikindi komu upp víðar á svæðinu en á Rjúpnavöllum og er leitast við að staðsetja smitið með frekari sýnatöku.

Heilbrigðiseftirliti Suðurlands barst tilkynning þann 7. ágúst um hóp náttgesta á Rangárvöllum í lok júlí sem veiktist af iðrasýkingu. Samdægurs var farið í eftirlitsheimsókn á Rangárvelli og tekin vatnssýni til rannsókna. E.coli saurgerlar greindust í neysluvatninu. 

Í kjölfar þess að Matvælastofnun og sóttvarnalæknir voru upplýst um málið þann 12. ágúst var upplýsingum safnað til að kortleggja umfang málsins. Á síðustu vikum hafa minnst sextíu náttgesta á Rangárvöllum veikst.

Fleiri sýktir

Búist er við að fleiri hafi sýkst þótt ekki liggi fyrir frekari upplýsingar, sérstaklega um þá ferðamenn sem búsettir eru erlendis.

Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur séð um sýnatökur á neysluvatni og meðal annars tekið sýni á tveimur stöðum til viðbótar á Rangárvöllum, eins og fram kemur í tilkynningu MAST.

Almennt um neysluvatn og fráveitur

Í tilkynningu MAST kemur einnig fram: „Mikilvægt er að frágangur á fráveitum sé með þeim hætti að mengi ekki umhverfið. Ef frágangur er ekki með fullnægjandi hætti er hætt við útbreiðslu smitsjúkdóma frá rotþróm. Sérlega mikilvægt er að gæta að því að skilgreina vatnsvernd umhverfis vatnsból þannig að ákveðið svæði sé algerlega friðað og að engir mengunarvaldar séu í nálægð við vatnsbólið.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert