Athuganir benda til að Skaftárhlaup sé að hefjast

Hér má sjá myndir frá Skaftárhlaupi í ágúst 2023.
Hér má sjá myndir frá Skaftárhlaupi í ágúst 2023. mbl.is/Jónas Erlendsson

Rafleiðni í Skaftá hefur hækkað hægt og rólega síðan í gærkvöldi og vatnshæð og rennsli árinnar við Sveinstind hefur aukist síðustu klukkustundir að sögn Veðurstofu Íslands.

Í tilkynningu sem Veðurstofa Íslands sendi frá sér rétt í þessu segir að ekki sé talið að leysing á jökli eða úrkoma valdi þessum breytingum, heldur benda þessar athuganir til þess að Skaftárhlaup sé að hefjast.

Í tilkynningunni segir að gögn veðurstofunnar gefi mögulega til kynna að upptök hlaupsins séu í Vestari-Skaftárkatli, en síðast hljóp úr katlinum í september 2021. 

Segir í tilkynningunni að hlaupin úr vestari katlinum séu að jafnaði minni en hlaupin úr þeim eystri.

Rennsli við Sveinstind var um 149 m3/s kl. 20:30 en búist er við að hámarksrennsli í þessu hlaupi fari ekki yfir 750 m3/s. Þó er ekki útilokað að vatn hlaupi úr Eystri-Skaftárkatli í kjölfarið.

Íbúar og aðrir séu meðvitaðir um aðstæður 

Í tilkynningunni er farið yfir mögulega vá af völdum Skaftárhlaups. 

Segir að mikilvægt sé að íbúar og allir þeir sem leið eiga um flóðasvæðið séu meðvitaðir um þær aðstæður sem upp geta komið og aðferðamenn séu upplýstir um mögulega náttúruvá, en hún er sem hér segir samkvæmt veðurstofunni.

-Næstu daga muni flóðaðstæður ríkja við bakka Skaftár. Mögulegt sé að Skaftá flæði yfir vegi sem liggja nærri árbökkum.

-Brennisteinsvetni berst með hlaupvatninu þegar það kemur undan jökli. Styrkur þess er þá svo mikill að það getur skaðað slímhúð í augum og öndunarvegi. Ferðafólki er því eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir.

-Sprungur munu myndast mjög hratt í kringum ketilinn, því ætti ferðafólk á Vatnajökli að halda sig fjarri kötlunum, sem og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls þar sem hlaupvatn gæti brotið sér leið upp á yfirborðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert