Einn látinn eftir alvarlegt slys við Hálslón

Sá slasaði var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Sá slasaði var úrskurðaður látinn á vettvangi. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn er látinn eftir alvarlegt slys sem varð við Hálslón norðan Vatnajökuls í morgun. 

Tilkynning um slysið barst lögreglu laust fyrir klukkan átta í morgun og var hinn slasaði úrskurðaður látinn á vettvangi. 

Sjúkralið, lögregla og þyrla landhelgisgæslunnar voru send á staðinn. 

Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá lögreglu. Frekari upplýsingar er ekki hægt að gefa að svo stöddu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglustjóranum á Austurlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert