Hvetja til framsýni við stýrivaxtaákvarðanir

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. mbl.is/Kristinn Magnússon

Samtök atvinnulífsins og ASÍ segja að augljós merki í atvinnulífinu séu um að hagkerfið sé að kólna og útlit er fyrir að hagvöxtur verði undir 1% á árinu. Segja félögin tvö því mikilvægt að Seðlabankinn sé framsýnn þegar kemur að ákvörðunum um stýrivexti.

Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu sem félögin tvö sendu frá sér fyrr í dag, en þar segir m.a. að félögin tvö hafi tekið höndum saman fyrr á árinu og gert langtímakjarasamninga, en þeir samningar auki  fyrirsjáanleika og stöðugleika í efnahagslífinu.

Voru samningsaðilar sammála um að meginmarkmið samninganna hafi verið að ná niður mikilli verðbólgu og háu vaxtastigi sem komið hefur hart niður á bæði heimilum og fyrirtækjum.

Mikilvægur árangur hefur náðst

Í tilkynningunni segir að fyrir ári hafi ársverðbólga mælst 7,7% og án húsnæðisliðarins 7,6% en í síðustu mælingu Hagstofu Íslands hafi ársverðbólgan verið 6,3% og án húsnæðisliðarins 4,2%.

Mikilvægur árangur hafi því náðst í baráttunni við verðbólguna, en SA og ASÍ árétta í tilkynningunni að allir aðilar vinnumarkaðarins, fyrirtæki landsins, ríki og sveitarfélög þurfi áfram að leggjast á eitt til þess að ná áðurnefndum markmiðum.

„Um þessar mundir eru augljós merki í atvinnulífinu um að hagkerfið sé að kólna og útlit er fyrir að hagvöxtur verði undir 1% á árinu. Háir raunvextir eru íþyngjandi fyrir skuldsett heimili, standa fjárfestingu í framtíðar verðmætasköpun fyrir þrifum og draga úr þrótti á íslenskum hlutabréfamarkaði. Það er því mikilvægt að Seðlabankinn sé framsýnn í sínum ákvörðunum þegar kemur að ákvörðun um stýrivexti“, segir m.a. í tilkynningu SA og ASÍ.

Þá leggja félögin áherslu á að sveitarfélög tryggi framboð af fjölbreyttum og hagkvæmum lóðum svo húsnæðismarkaðurinn verði í takt við eftirspurn, þar sem jafnvægi á húsnæðismarkaði sé forsenda efnahagslegs stöðugleika.

Yfirvöld standi við gefin loforð

Í tilkynningunni segir jafnframt að mikið átak hafi þurft til að tryggja fjögurra ára kjarasamninga á almennum vinnumarkaði í því augnamiði að stuðla að stöðugleika og fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki og heimili.

„ Í ljósi þess að loforð yfirvalda um aðgerðir í tengslum við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði eru hluti forsenduákvæða samninganna leggja samningsaðilar áherslu á að staðið sé við gefin loforð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert