Lögreglumenn fá rafbyssur í september

Rúmlega 460 lögreglumenn hafa hlotið þjálfun og öðlast réttindi til …
Rúmlega 460 lögreglumenn hafa hlotið þjálfun og öðlast réttindi til að bera rafvarnarvopn. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Almenningur getur átt von á að sjá lögreglumenn bera rafvarnarvopn fljótlega en tækin verða afhent lögregluembættunum í fyrstu viku septembermánaðar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra en þar segir að embættið leggi nú lokahönd á nauðsynlegan undirbúning svo lögregla geti tekið rafvarnarvopn til notkunar. Rúmlega 460 lögreglumenn hafa hlotið þjálfun og öðlast réttindi til að bera rafvarnarvopn.

Aðeins menntaðir lögreglumenn, sem fengið hafa til þess þjálfun, munu bera rafvarnarvopn og verður mikið eftirlit með notkun þeirra m.a. í formi sjálfvirkra skráninga og sjálfvirkrar myndupptöku úr búkmyndavél. Tölfræði yfir notkun rafvarnarvopna og annarra valdbeitingatækja verður gerð opinber með reglubundnum hætti á vef lögreglu.

„Rafvarnarvopnin eru á sama stigi í valdbeitingarstiganum og kylfa og varnarúði og gefa lögreglu aukna möguleika á að velja þann varnarbúnað sem hæfir hverju verkefni. Með því er leitast við að auka öryggi almennings og lögreglu,“ segir í tilkynningunni.

Rúmlega helmingur hlynntur því að lögreglan beri rafvarnarvopn 

Niðurstöður nýrrar könnunar Gallups sýna að rúmur helmingur landsmanna er hlynntur því að lögreglan beri rafvarnarvopn við störf. Í könnun Gallups voru sömu spurningar lagðar fyrir landsmenn og bornar voru undir lögreglumenn í könnun við lok árs 2023.

Rúmlega 51 prósent landsmanna segjast mjög eða frekar hlynntur því að lögregla beri rafvarnarvopn við störf sín.

Rúmlega 19 prósent landsmanna segjast hvorki hlynntir því né andvíg að lögregla beri rafvarnarvopn við störf sín.

Tæplega 30 prósent segjast frekar eða mjög andvíg því að lögregla beri rafvarnarvopn við störf sín. Þar af segjast 12,9 prósent frekar andvíg  og 16,7 prósent mjög andvíg.

Könnun Gallups var framkvæmd 7. júní til 4. júlí síðastliðinn og var fjöldi svarenda 2.201. Spurt var um viðhorf til lögreglu, reynslu af afbrotum og ótta við þau. Könnunin var netkönnun og svarhlutfall var 49%.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert