Heita vatnið að koma rólega á hverfin eitt af öðru

Vinnu við tengingu Suðuræðar 2 lauk klukkan 22.40 í gærkvöldi.
Vinnu við tengingu Suðuræðar 2 lauk klukkan 22.40 í gærkvöldi. Ljósmynd/Veitur

Vinnu við tengingu Suðuræðar 2 lauk  klukkan 22.40 í gærkvöldi og byrjað var að hleypa vatni aftur á flutningsæðina fyrir miðnætti. Því var lokið um miðja nótt.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum en þar segir að áætlun um að opna samtímis á öll hverfin hafi verið aðlöguð aðstæðum þegar á leið.

Vatni er hleypt á svæðin eitt af öðru meðfram lögninni og nú er Norðlingaholt, efri hverfin í Kópavogi og hluti af Garðabæ komin með góðan þrýsting.

„Verið er að opna fyrir vatnið hægt og rólega á önnur svæði eftir Suðuræð. Það tekur tíma að ná upp þrýstingi í dreifikerfinu, en þegar íbúar hafa fengið heitt vatn heim til sín þá fer það ekki aftur af nema eitthvað komi upp á.

Þegar vatninu er hleypt aftur á dreifikerfið geta komið upp lekar og verði fólk vart við slíkt utanhúss er mikilvægt að tilkynna það strax til Veitna í neyðarsímann 516 6161. Komi upp leki innanhúss þarf að hafa samband við pípara,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Uppfært klukkan 7.10:

Heita vatnið rennur nú hægt inn á nánast öll hverfi. Það mun taka nokkrar klukkustundir að ná upp fullum þrýstingi.

Uppfært klukkan 8.30:

Búið er að opna fyrir heita vatnið inn á öll hverfi. Þau sem búa neðarlega í hlíðum koma til með að fá þrýsting á vatnið fyrst og síðar þau sem búa ofarlega. Þar stjórnar landslagið rennslinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert