Miklar umferðartafir á Hafnarfjarðarvegi

Umferðaróhapp var nú síðdegis í Kópavogsdalnum.
Umferðaróhapp var nú síðdegis í Kópavogsdalnum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Miklar umferðartafir eru nú á Kringlumýrarbraut/Hafnarfjarðarvegi til suðurs vegna umferðaróhapps sem varð á Hafnarfjarðarvegi í Kópavogsdalnum. 

Lögreglan er nú á staðnum og hleypir umferð um eina akrein. Nær bílaröðin frá Kópavogsdal og fram yfir Kringlu, sem og upp á Bústaðaveg að sögn blaðamanns á vettvangi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert