Rennslið vex jafnt og þétt

Kort/Veðurstofa Íslands

Rennsli í Skaftá við Sveinstind hélt áfram að vaxa fram eftir gærkvöldi en hefur verið í hægum vexti það sem af er degi. Rennslið þar mælist nú tæplega 180 m3/s sem er sambærilegt við mikið sumarrennsli en í lægri kantinum miðað við hámarksrennsli síðustu Skaftárhlaupa.

Rennsli í Eldvatni, nærri þjóðvegi 1, er einnig farið að vaxa jafnt og þétt. Að svo stöddu hefur hlaupið ekki áhrif á helstu vegi á svæðinu, en áfram verður fylgst náið með þróun hlaupsins, að því er segir í tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. 

Kortið sýnir staðsetningu vatnshæðamæla Veðurstofunnar og rennslisleið hlaupvatns frá Skaftárkötlum.
Kortið sýnir staðsetningu vatnshæðamæla Veðurstofunnar og rennslisleið hlaupvatns frá Skaftárkötlum. Kort/Veðurstofa Íslands

Töluverð óvissa

„Þekkt eru hlaup úr Vestari-Skaftárkatlinum sem ekki ná miklu hámarksrennsli en vara lengi (1-2 vikur). Mögulegt er að slíkt hlaup sé í gangi núna en það er þó enn of snemmt að fullyrða til um það. 

Nú eru um þrjú ár frá síðasta hlaupi úr Vestari-Skaftárkatli sem er óvenju langur tími milli hlaupa. Því er líklegt að þetta hlaup eigi upptök sín þar en það hefur þó ekki enn fengist staðfest. Vegna þessa er töluverð óvissa um áframhald hlaupsins og mögulega stærð þess.

Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi almannavarna vegna Skaftárhlaups.  

Ferðafólki er eindregið ráðlagt að halda sig fjarri farvegi Skaftár ofan Skaftárdals svo og jöðrum Skaftárjökuls, Tungnárjökuls og Síðujökuls á meðan hlaupið stendur yfir,“ segir í tilkynningunni. 

Nánari upplýsingar hér. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert