Stýrivextir Seðlabankans áfram óbreyttir

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðlabanka Íslands hef­ur ákveðið að halda vöxt­um bank­ans óbreytt­um. Meg­in­vext­ir bank­ans, vext­ir á sjö daga bundn­um inn­lán­um, verða því áfram 9,25%.

Stýrivextir hafa því verið óbreyttir í heilt ár. 

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá peningastefnunefnd.  

„Verðbólga hefur aukist lítillega frá síðasta fundi nefndarinnar eftir að hafa hjaðnað fram eftir ári. Undirliggjandi verðbólga er enn mikil og verðhækkanir eru á breiðum grunni þótt húsnæðisliðurinn vegi enn þungt. Verðbólguvæntingar hafa einnig lítið breyst og haldist yfir markmiði,“ segir í yfirlýsingunni.

Hjöðnun í verðbólgu getur tekið nokkurn tíma

Fram kemur að hægt hefur á innlendri eftirspurn undanfarið ár í takt við aukið peningalegt taumhald. Nokkur spenna sé þó enn til staðar í þjóðarbúinu og hefur lítið dregið úr henni frá maífundi nefndarinnar.

Þá kemur fram að horfur séu því á að það geti tekið nokkurn tíma að ná fram ásættanlegri hjöðnun verðbólgu.

„Peningastefnunefnd telur að núverandi aðhaldsstig sé hæfilegt til þess að koma verðbólgu í markmið en þrálát verðbólga og kraftur í innlendri eftirspurn kalla á varkárni. Mótun peningastefnunnar mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga,“ segir í yfirlýsingunni. 

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert