Þreyttir og pirraðir á votviðrinu

Mikil rigning hefur verið í sumar og óhagstætt veður til …
Mikil rigning hefur verið í sumar og óhagstætt veður til að mála. Hefur málurum því ekki tekist að mála mikið utandyra það sem af er sumri Ljósmynd/Ernir.

Málarar landsins eru pirraðir og þreyttir, að sögn Finnboga Þorsteinssonar málarameistara, eftir slæma veðrið í sumar.

Bæði hann og Kristján Aðalsteinsson formaður Málarameistarafélagsins segja að mörgum verkum hafi verið frestað vegna veðurs og lítið hafi verið hægt að vinna utandyra vegna þess hversu mikið hafi rignt undanfarið.

Að sögn beggja hefur nokkrum sinnum í sumar byrjað að rigna eftir að málarar hófust handa utandyra og þá hafi málningin stundum runnið til eða jafnvel skolast alveg af.

Það sé yfirleitt þá tap málarans sem þarf að mála yfir og laga, þar sem þetta gerist oft við tilbúin verk, að sögn Kristjáns.

„Þetta hefur haft gríðarleg áhrif, bara tekjutap og annað, fyrir málarastéttina, það er alveg á hreinu. Dagar nýtast mjög illa, þú ert alltaf á flakkinu,“ segir Finnbogi, spurður um áhrif ástandsins á málara.

Margir málarar fari þá að vinna innanhúss en Kristján segir þá eiga erfitt með að komast aftur út þar sem verkefnin fari að stangast á. „Það er mjög erfitt að skipta á milli inni- og útiverka, þessar færslur á mannskap eru mjög dýrar,“ segir Finnbogi.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert