Beit lögreglumann og var með ljótar hótanir

Einn var handtekinn fyrir að bíta lögreglumann.
Einn var handtekinn fyrir að bíta lögreglumann. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Einn var handtekinn þar sem hann lét öllum illum látum í heimahúsi. Náði hann að bíta lögreglumann og var með ljótar hótanir í garð annars lögreglumanns.

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Dagbókin nær til verkefna lögreglu á höfuðborgarsvæðinu frá klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.

Þá var einn handtekinn fyrir slagsmál og hótanir. Notaði hann meðal annars skrúfjárn til að hóta öðrum með.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert