Maður á þrítugsaldri var fluttur til aðhlynningar í Fossvogi eftir bílveltu á Reykjanesbraut nú síðdegis. Samkvæmt Herberti Eyjólfssyni, varðstjóra slökkviliðsins á Suðurnesjum, var ekki að sjá að hann væri mikið slasaður og gekk hann sjálfur út úr bifreiðinni.
Útkallið barst klukkan 17:19. Umferð var stýrt fram hjá slysstað. Ekki er vitað hvað olli bílveltunni.