Hrun orðið í stofnstærð fálka

Fækkun á sér sögu nokkur ár aftur í tímann.
Fækkun á sér sögu nokkur ár aftur í tímann. mbl.is/Árni Sæberg

Niðurstöður vöktunar á varpstofni fálka á þessu ári sýna að varpstofninn hefur ekki verið minni frá upphafi vöktunar á árinu 1981.

Er viðkoman í ár sú lakasta frá upphafi mælinga. Í umfjöllun á vef Náttúrufræðistofnunar Íslands (NÍ) segir að enginn efi sé á því að fálkum hafi fækkað mikið á síðustu árum og í raun sé hægt að tala um hrun í stofnstærð fálka.

Fækkun á sér lengri sögu

NÍ hefur birt ítarlega greinargerð um vöktun fálka á árinu 2024 og segir í samantekt að ástæðan fyrir lélegri viðkomu hafi verið tíðarfar á varptíma og ungatíma. „Fækkun í stofni á sér lengri sögu og nær alla vega fjögur til fimm ár aftur í tímann og þar ráða önnur öfl en vorhret. Varpstofn fálka á Norðausturlandi hefur minnkað um 45% frá 2019 eða um 11% að jafnaði á ári,“ segir í umfjöllun NÍ.

Lesa má meira um málið í Morgunblaðinu í dag

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert