Í stríði gegn heimilunum

Hagsmunasamtök heimilanna segir að vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær sé ekkert …
Hagsmunasamtök heimilanna segir að vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær sé ekkert annað en stríðsyfirlýsing. mbl.is/Sigurður Bogi

Hagsmunasamtök heimilanna segja að vaxtaákvörðun Seðlabankans í gær sé ekkert annað en stríðsyfirlýsing gegn heimilum landsins.

„Hvergi á byggðu bóli voga seðlabankar sér að fara gegn heimilum landsins með viðlíka hætti og hér og hvergi á byggðu bóli hefur verðbólgan haldist jafn há og hér. Hvert mannsbarn með vott af skynsemi ætti að sjá að vaxtahækkanir Seðlabankans hafa fyrir löngu síðan snúist upp í andhverfu sína og auka beinlínis vandann sem þær eiga að glíma við. Fyrir hverja er verið að berjast við verðbólguna ef ekki fyrir fólkið í landinu?“ segir í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna.

Aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar óverjandi

Hagsmunasamtökin segja aðgerðaleysi ríkisstjórnar Bjarna Benediktssonar og þar áður sömu ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur, gagnvart þessu áhlaupi á heimilin sé óverjandi, en því miður ekki fordæmalaust.

„Vegna þjónkunar ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingríms J. Sigfússonar við fjármálakerfið, misstu a.m.k. 15.000 fjölskyldur heimili sín, fyrir utan allar þær sem lentu í skuldaklafa og ánauð bankanna vegna þeirra „reddinga“ sem þeim var boðið upp á. Fyrir skynsamt fólk eru vítin til að varast þau en ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar virðist loka augunum fyrir hrikalegum afleiðingum aðgerða Seðlabankans,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Ekki valdalaus gagnvart Seðlabankanum

Hagsmunasamtökin segjast hafa varað við afleiðingum þess að verið sé að ýta fólki yfir í verðtryggð lán en talað fyrir daufum eyrum, sem aðeins eru þó að sperrast núna, allt of allt of seint.

„Ríkisstjórnin er ekki valdalaus gagnvart Seðlabankanum. Henni ber að grípa til aðgerða til að verja og bjarga heimilum landsins því hagur þeirra skiptir mun meira máli en manngerð lög um sjálfstæði Seðlabankans, sem engir varnaglar voru settir á. Því er hægt að breyta og því þarf að breyta.“

Hagsmunasamtökin segja að enginn hafi leyfi til að fórna heimilum landsins með markvissum hætti fyrir fjármálakerfið, alveg sama hver það er og alls ekki fólk sem engin hefur kosið og sótt umboð sitt til ríkisstjórnar Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert