Eldflaugavarnarkerfi flutt til Íslands

Ljósmynd sem var tekin í Hvalfirði árið 2022 þegar varnaræfingin …
Ljósmynd sem var tekin í Hvalfirði árið 2022 þegar varnaræfingin var síðast haldin. mbl.is/Árni Sæberg

Varnaræfingin Norður-Víkingur hefst í næstu viku og munu 1.200 manns frá Íslandi, Bandaríkjunum og bandalagsríkjum taka þátt. Hingað kemur meðal annars pólsk hersveit með færanleg – óvirk – eldflaugavarnarkerfi í æfingarskyni til að verjast óvinveittum skipum.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins.

Æfingin fer fram á Íslandi og hafsvæðinu kringum landið dagana 26. ágúst til 3. september.

Megintilgangur æfingarinnar er að æfa varnir mikilvægra mannvirkja, varnir sjóleiða umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu stofnana sem að verkefninu koma hér á landi. Æfingin er haldin að jafnaði á tveggja ára fresti.

Mynd frá varnaræfingunni Norður-Víkingur árið 2022.
Mynd frá varnaræfingunni Norður-Víkingur árið 2022. mbl.is/Árni Sæberg

1.200 taka þátt og þar af 200 Íslendingar

„Æfingin miðar þannig að því að mæta hefðbundinni hernaðarógn á landi, á sjó og í lofti en einnig fjölþáttaógnum og skemmdaverkum þar sem reynir ekki hvað síst á íslensk stjórnvöld og viðbrögð og viðbragðsgetu íslenskra stofnana,“ segir í tilkynningunni.

Alls taka um 1.200 manns þátt í æfingunni, þar af um 200 Íslendingar frá varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, Landhelgisgæslunni, Ríkislögreglustjóra, Almannavörnum og öðrum stofnunum.

Æfingin verður að mestu leyti í og við öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli og leggja þátttakendur áherslu á að æfa samhæfingu sveita og búnaðar svo að bandalagsþjóðir geti unnið skipulega að samræmdum markmiðum.

Æfinigin verður að mestu leyti á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Hér …
Æfinigin verður að mestu leyti á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Hér má sjá orrustuþota norska flughersins, af gerðinni F-35, taka á loft á öryggissvæðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Viðgerðir eftir sprengjuárás æfðar

„Æfðar verða til dæmis uppgöngur í skip, viðbrögð við árás á mikilvæga innviði, kafbátaeftirlit, flutningur á búnaði og liðsafla til Íslands, gistiríkjastuðningur og samskipti við stjórnstöðvar hér á landi, sprengjueyðing, viðgerðir á flugbrautum eftir sprengjuárás, eldsneytisáfyllingar, leit og björgun og sjúkraflutningar,“ segir í tilkynningunni.

Sérstaklega verður æft borgaralega og hernaðarlega samvinnu þar sem horft verður til þess að herliðið aðstoði almannavarnir við rýmingu á svæði og flutning slasaðra í kjölfar náttúruhamfara.

Hluti fastaflota NATO kemur einnig

Æfingin er haldin á grundvelli tvíhliða varnarsamnings Íslands og Bandaríkjanna frá 1951 en auk Íslands og Bandaríkjanna taka þátt í æfingunni sveitir, flugvélar og skip frá Danmörku, Frakklandi, Hollandi, Noregi, Póllandi og Portúgal.

„Vegna æfingarinnar kemur hluti fastaflota Atlantshafsbandalagsins [NATO] til landsins,“ segir í tilkynningunni.

Frá síðustu æfingu.
Frá síðustu æfingu. mbl.is/Árni Sæberg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert