Fái heimild til að innheimta skólagjöld af nemendum utan EES

Markmiðið er að styrkja fjárhagsstöðu háskólanna og bæta gæði námsins.
Markmiðið er að styrkja fjárhagsstöðu háskólanna og bæta gæði námsins. mbl.is/Eyþór

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hyggst leggja fram frumvarp á haustþingi sem heimilar opinberum háskólum að innheimta skólagjöld af nemendum frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins (EES).

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef ráðuneytisins.  

Með breytingunni verður einnig boðið upp á námsstyrki fyrir afburðanemendur frá þessum löndum til að tryggja að efnilegir nemendur hafi áfram tækifæri til náms á Íslandi.

Ísland skorið sig úr meðal norðurlandaþjóða

Markmiðið er að styrkja fjárhagsstöðu háskólanna og bæta gæði námsins.

Ísland er eina Norðurlandaþjóðin sem ekki innheimtir skólagjöld af nemendum utan EES, en sambærilegar breytingar hafa þegar verið gerðar í nágrannalöndum.

Breytingin er í samræmi við ábendingar frá OECD og á ekki að hafa áhrif á heildarfjármögnun háskólanna. Frumvarpið verður lagt fram á haustþingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert