Myndir: Flogið yfir gosið í nótt

Horft frá vestri yfir gossprunguna og hraunið sem flætt hefur …
Horft frá vestri yfir gossprunguna og hraunið sem flætt hefur í vesturátt. Nýja gossprungan er ofarlega til vinstri á myndinni. mbl.is/Eyþór

Ljósmyndari mbl.is og Morgunblaðsins flaug með Landhelgisgæslunni og vísindamönnum yfir eldgosið á Reykjanesskaga nú á þriðja og fjórða tímanum í nótt. Þar má vel sjá hvernig krafturinn í gosinu er nú að mestu í norðurhluta fyrri gossprungunnar. Einnig er nokkur virkni í nýrri sprungu sem er norðan megin við þá fyrri. Hins vegar er virknin nokkuð minni í suðurhlutanum.

Þessi mynd sýnir vel nýju sprunguna í vinstra horninu niðri …
Þessi mynd sýnir vel nýju sprunguna í vinstra horninu niðri og fyrri sprunguna með mikilli virkni fyrir miðju og svo syðri hlutann þar sem virknin hefur minnkað. mbl.is/Eyþór

Þá sést einnig vel hvernig hraunið rennur bæði til austurs og vestur frá gossprungunni og á einni mynd má sjá þegar nýrri vefmyndavél er komið niður á Stóra-Skógfelli, en hún á að ná sjónarhorni á gosstöðvarnar sem aðrar myndavélar ná illa.

Gossprungan.
Gossprungan. mbl.is/Eyþór
Nýrri vefmyndavél komið fyrir á Stóra-Skógfelli.
Nýrri vefmyndavél komið fyrir á Stóra-Skógfelli. mbl.is/Eyþór
Flogið yfir gosstöðvarnar.
Flogið yfir gosstöðvarnar. mbl.is/Eyþór
Hraun úr gosinu flæðir bæði til austurs og vesturs.
Hraun úr gosinu flæðir bæði til austurs og vesturs. mbl.is/Eyþór
Mesta virknin er í norðurhluta fyrri sprungunnar.
Mesta virknin er í norðurhluta fyrri sprungunnar. mbl.is/Eyþór
Nýtt hraun.
Nýtt hraun. mbl.is/Eyþór
Vísindamenn í þyrlu gæslunnar í nótt.
Vísindamenn í þyrlu gæslunnar í nótt. mbl.is/Eyþór
Gosið í gegnum glugga þyrlunnar.
Gosið í gegnum glugga þyrlunnar. mbl.is/Eyþór
Gossprungan og hrauntaumar.
Gossprungan og hrauntaumar. mbl.is/Eyþór
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert